Átt þú rétt á flutningsjöfnunarstyrk?
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
10.02.2014
kl. 16.46
Á heimasíðu SSNV er minnt á að opnað hefur verið fyrir umsóknir um flutningsjöfnunarstyrk vegna kostnaðar við flutning árið 2013 en umsóknarfrestur er til 31. mars 2014.
Þeir sem rétt hafa á að sækja um eru einstaklingar eða lögaðilar sem stunda framleiðslu á vöru sem fellur undir c-bálk íslensku atvinnugreinaflokunarinnar. Þá þarf lengd ferðar á markað að vera að lágmarki 245 km frá framleiðslustað.
Nánari upplýsingar um styrkina má finna á heimasíðu Byggðastofnunar.