Átta sóttu um Fab Lab stöðuna
Fyrir nokkru var auglýst laust starf verkefnastjóra við Fab Lab smiðjuna á Sauðárkróki og sóttu átta manns um stöðuna. Að sögn Hildar Sifjar Arnardóttur upplýsingafulltrúa Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands verður fljótlega gengið frá ráðningu.
„Það er ekki búið að ráða í stöðuna, en viðtöl hafa verið tekin við tvo umsækjendur og vonumst við til að gengið verði frá ráðningu mjög fljótlega,“ segir Hildur.
Þeir átta sem sóttu um stöðuna eru:
Hafey Viktoría Hallgrímsdóttir, Sauðárkróki
Sigurjón Þórðarson, Hvammstanga
Guðrún Ágústa Ágústsdóttir, Kópavogur
Álfhildur Leifsdóttir, Sauðárkrókur
Raimund Bernhard Brockmeyer-Urbschat, Blöndósi
Þór Clausen, Garðabær
Ólafur Sigvaldason, Hafnarfjörður
Hasna Boucham, Sauðárkrókur