Áttavillt bréfdúfa á Blönduósi

Bréfdúfa sást á vappi í Urðarbrautinni á Blönduósi í gær en þá sást einnig til bréfdúfu á flugi í bænum sl. laugardagskvöld. Samkvæmt Bréfdúfufélagi Íslands var þessari dúfu líklega sleppt á Akureyri sl. laugardag og var hún að taka þátt í móti. Húni.is greinir frá þessu.

Dúfan átti að fljúga frá Akureyri til Húsavíkur en hefur greinilega tekið ranga stefnu og endað á Blönduósi.

„Þórður Rafn Þórðarson var meðal þeirra sem sá dúfuna og sendi Húnahorninu meðfylgjandi myndir. Þórður Rafn hafði samband við Bréfdúfufélag Íslands og fékk þær upplýsingar að væntanleg væri þetta bréfdúfa sem tók þátt í bréfdúfumóti á Akureyri síðastliðinn laugardag og var henni ætlað að fljúga til Húsavíkur. Hefur hún tekið rangan pól í hæðina og farið í vesturátt og endað á Blönduósi,“ segir á Húna.is.

Bréfdúfan er samkvæmt Húna.is mjög gæf og ef einhver skildi ná til hennar óskar Haraldur hjá Bréfdúfufélaginu eftir því að haft verði samband við hann í síma 856-5757.

 

Fleiri fréttir