Áttu minningar um sveitadvöl?

Nú ræður nostalgían ríkjum í Þjóðleikhúsinu, í söngleiknum Bjart með köflum eftir Ólaf Hauk Símonarson. Verkið gerist í íslenskri sveit á sjöunda áratugnum og lýsir fyrstu kynnum ungs pilts úr Reykjavík af sveitinni. Á bænum sem hann er á virðist nútíminn ekki enn hafa haldið innreið sína, og fjölskyldan stritar við að yrkja landið og sækja sjóinn líkt og forfeðurnir hafa gert um aldir. Í tengslum við sýninguna óskar Þjóðleikhúsið eftir stuttum textum frá almenningi sem innihalda minningar um sveitadvöl, gjarnan frá 7. áratugnum, en einnig frá öðrum tímum.

Minningarbrotin má senda á netfangið dora@leikhusid.is og verða þau síðan sett inn á heimasíðu leikhússins. Höfundar nokkurra texta verða verðlaunaðir með boðsmiðum í Þjóðleikhúsið.

Fleiri fréttir