Atvinnuleysi í febrúar 8,6%

Skráð atvinnuleysi í febrúar 2011 var 8,6% yfir landið en að meðaltali 13.772 manns voru atvinnulausir í febrúar og eykst atvinnuleysi um 0,1 prósentustig frá janúar eða um 314 manns að meðaltali. Á Norðurlandi vestra voru í lok febrúar 167 manns án atvinnu.

Það eru minnstu sveitarfélögin, Skagahreppur í Austur-Húnavatnssýslu og Akrahreppur í Skagafirði sem eiga ekki við vandann að stríða þar sem atvinnuleysi mælist ekkert í lok mánaðarins og aðeins fjórir voru án atvinnu í Húnavatnshreppi, 3 karlar og 1 kona. Mest var atvinnuleysið í Svf. Skagafirði þar sem alls 68 voru án atvinnu, 38 karlar og 30 konur. Fjörtíu og sjö einstaklingar voru án atvinnu á Blönduósi, 32 karlar og 15 konur. Jafnt fer á í kynjahlutfallinu í Húnaþingi vestra þar sem 17 voru án atvinnu hjá hvoru kyni og sama er uppi á teningnum á Skagaströnd þar sem 7 konur og 7 karlar voru án atvinnu þar. Samtals voru 167 án atvinnu á Norðurlandi vestra í lok febrúar, 97 karlar og 70 konur.

Horfur á vinnumarkaði í mars
Í mars 2010 var atvinnuleysi 9,3% yfir landið eða sama og í febrúar 2010. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í mars 2011 breytist ekki mikið og verði á bilinu 8,5%‐8,8.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir