Atvinnuleysi minnst á Norðurlandi vestra

Í lok september var atvinnuleysi á landinu öllu um 3% en minnst var það á Norðurlandi vestra, af öllum landshlutum, eða um 1.3%. Einstaklingar án atvinnu í landshlutanum voru 57. Þetta kemur fram í upplýsingum um stöðu á vinnumarkaði sem birtust á heimasíðu vinnumálastofnunar 14. október sl.

Í september fækkaði atvinnulausum körlum um 117 frá ágúst en að meðaltali voru 2.257 karlar á atvinnuleysisskrá og 2.772 konur en atvinnulausum konum fækkaði um 276 frá ágúst og var atvinnuleysið 2,5% meðal karla og 3,6% meðal kvenna. Atvinnulausum fækkaði að meðaltali um 378 á höfuðborgarsvæðinu og var atvinnuleysi 3,3% í september en var 2,4% á landsbyggðinni en þar fækkaði atvinnulausum um 15 frá ágúst. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum, 4,5%.

Fleiri fréttir