Atvinnuleysi minnst á Norðurlandi vestra

Samkvæmt skýrslu vinnumálastofnunar um stöðu á vinnumarkaði í mars 2015 var atvinnuleysi minnst á landsvísu á Norðurlandi vestra í marsmánuði. Mældist atvinnuleysi í landshlutanum 2,3% en að meðaltali voru 78 einstaklingar atvinnulausir í landshlutanum í mars.

Næst á eftir Norðurlandi vestra kom Vesturland með 2,5% atvinnuleysi en mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum eða 5,6%. Á Norðurlandi vestra er atvinnuleysið heldur meira meðan karla en kvenna, öfugt við alla aðra landshluta nema Vestfirði. Atvinnuleysið var mest í aldurshópunum 20-24 ára og 25-29 ára og flestir höfðu verið án atvinnu í 13-18 vikur.

Í lok marsmánaðar voru alls 82 án atvinnu, þar af 16 í Blönduósbæ, 5 í Húnavatnshreppi, 19 í Húnaþingi vestra, 1 í Skagabyggð, 35 í Skagafirði og 6 á Skagaströnd. Enginn var á atvinnuleysisskrá í Akrahreppi. Í mars 2013 var atvinnuleysi á Norðurlandi vestra aðeins 1,8% en þess utan hafði ekki mælst minna atvinnuleysi í marsmánuði síðan árið 2008. Að meðaltali var atvinnuleysi 1,9% á Norðurlandi vestra frá apríl 2014 fram í mars 2015, mest í febrúar sl. og mældist þá 2,7%.

Fleiri fréttir