Atvinnuleysisbætur hækka

Atvinnuleysistryggingar hækkuðu 1. júní s.l. og nemur hækkun grunnatvinnuleysisbóta um 12.000 kr. sem svarar til krónutöluhækkunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Þær  eru því kr. 161.523 á mánuði í stað kr. 149.523 áður. Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta hækkuðu einnig og verður að hámarki kr. 254.636  á mánuði.

Greidd verður út eingreiðsla til þeirra atvinnuleitenda sem hafa verið tryggðir á tímabilinu 20. febrúar til 19. maí s.l. Þeir einstaklingar sem hafa verið að fullu tryggðir á tímabilinu munu fá greiddar kr. 50.000 í eingreiðslu. Atvinnuleitendur sem eru hlutfallslega tryggðir eða hafa ekki staðfest atvinnuleit á öllu tímabilinu 20. febrúar til 19. maí sl. fá greitt í hlutfallslega við bótarétt og lengd atvinnuleitar.  Eingreiðslan verður greidd 10. júní nk.

Fleiri fréttir