Auglýst eftir framkvæmdastjóra Þekkingarseturs

Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Heimilisiðnaðarsafnið,Textílsetur Íslands, Laxasetur Íslands, Háskólinn á Hólum, SSNV, Landsvirkjun og Farskólinn á Norðurlandi vestra hafa stofnað Þekkingarsetur sem hefur það að markmiði að stuðla að aukinni þekkingu og fjölbreytni atvinnulífs í Austur-Húnavatnssýslu með fræðslustarfi, eflingu háskólamenntunar, vísindarannsóknum og nýsköpun á sviði Textíls, Hafís/ Strandmenningar og Laxfiska. Óskað er eftir starfsmanni í 50% starf framkvæmdastjóra setursins og verður starfið staðsett á Blönduósi.

Helstu verkefni eru:

  • .. daglegur rekstur setursins og samræming starfseminnar
  • .. hafa frumkvæði að stefnumótun í samráði við stjórn
  • .. samskipti við stjórn og samstarfsaðila
  • .. skipulagning og stjórnun viðburða á vegum þekkingarsetursins
  • .. afla fjármagns til reksturs og verkefna setursins
  • .. tengiliður/fulltrúi setursins vegna þróunar rannsóknarverkefna tengd áhersluþáttum
  • setursins
  • .. samskipti við fyrirtæki og stofnanir á starfssvæði setursins

 

Hæfnikröfur:

  • .. reynsla af stjórnun og rekstri
  • .. framhaldsmenntun á háskólastigi æskileg
  • .. ríkir samstarfshæfileikar og hæfni til að leiða saman ólíka hópa fólks
  • .. góð tungumálakunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2012 og skulu sendar á netfangið arnar@blonduos.is

Fleiri fréttir