Auglýst eftir lögreglumanni

Við embætti lögreglustjórans á Blönduósi er laus til umsóknar ein staða lögreglumanns en Ríkislögreglustjóri skipar í stöðuna frá og með 5. október nk. Á vef Starfatorgsins segir að í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til þess að sækja um.

Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins og vera sjálfstæðir í vinnubrögðum þar sem umsækjandi þarf að vera undir það búinn að vinna að einhverju leyti einn. Æskilegt er að hann hafi reynslu af rannsóknum mála og góða almenna tölvukunnáttu.

Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2013 og skal umsóknum skilað til lögreglustjórans á Blönduósi Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduós

Fleiri fréttir