Auglýst eftir ungmennum í 8 daga sumardvöl

Má bjóða þér að taka þátt í 8 daga sumardvöl í júní þar sem saman koma ungmenni á aldrinum 16-20 ára frá Evrópu? Auglýst er eftir þátttakendum í verkefnið sem hefur hlotið styrk á vegum Evrópu unga fólksins en þema dvalarinnar er lýðræði og verður unnið með hugtakið á fjölbreyttan hátt.

„Um er að ræða vikuna 15.-22. júní. Hóparnir sem koma og verða með okkur eru frá Serbíu, Póllandi og Kosovo,“ segir Hlín Rafnsdóttir framhaldsskólakennari.

„Við verðum með aðstöðu á Sólheimum í Grímsnesi. Vinnuaðstaða er í Sesseljuhúsi og svefnpláss í gistiheimilinu á staðnum,“ segir Hlín og segir að farnar verði tvær dagsferðir, Reykjavík annars vegar og Gullna hringinn hins vegar (með áherslu á Þingvelli).

Þátttökugjald er aðeins 15.000 kr., gisting og fæði eru innifalin.

Nánari upplýsingar og/eða skráning er á netfangið: gagn.gaman@gmail.com.


Fleiri fréttir