Aukið samstarf opinberu háskólanna

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum hafa gert með sér samning um sameiginlega stoðþjónustu á ákveðnum sviðum. Rektorar skólanna skrifuðu undir samninga þessa efnis að viðstöddum mennta- og menningarmálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, þann 9. maí.

Fyrsta skref samstarfsins verður sameiginlegt upplýsingakerfi fyrir nemendur  og um kennslu. Um leið verður tekið upp samræmt kerfi  fyrir akademískt mat á starfsmönnum og varðandi  ráðningar, framgang og launabreytingar. Stefnt er  að því að víkka út samninginn til fleiri sviða stoðþjónustunnar. Þar er meðal annars  horft á gæðaviðmið og gæðaeftirlit í meistara- og doktorsnámi,  stuðning við kennara og kennslufræðilega ráðgjöf og þjálfun. Einnig er unnið að uppbyggingu á tæknilausnum sem auðvelda fjarfundi, fjarnám og þráðlaus netsamskipti. Hér er um tímamótasamning að ræða og er honum ætlað að styrkja háskólana fjóra með því að efla enn frekar stoðþjónustu þeirra og tæknilega innviði sem auðvelda frekara samstarf.

Þá eru hafnar viðræður milli akademískra starfsmanna  skólanna um samstarf á sviði námsframboðs. Þetta verður meðal annars gert með samkennslu og auðveldara aðgengi nemenda að námskeiðum milli skóla. Markmiðið er að nýta betur þann mannauð sem skólarnir búa yfir og auka valfrelsi nemenda.

Samstarf opinberra háskóla byggir á stefnu þar að lútandi sem sett var af mennta- og menningarmálaráðherra í ágúst síðastliðnum. Þá var skipuð sérstök verkefnisstjórn en í henni sitja rektorar skólanna ásamt fleirum.

Sjá nánar á heimasíðu samstarfsins: www. samstarf.hi.is og á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytis.

Fleiri fréttir