Aukin fjölbreytni með útikennslu

Auka á fjölbreytni í kennsluháttum við Blönduskóla, m.a. með útikennslu í Fagrahvammi.
Auka á fjölbreytni í kennsluháttum við Blönduskóla, m.a. með útikennslu í Fagrahvammi.

Blönduskóli hefur óskað eftir því við Blönduósbæ að fá leyfi til að koma sér upp útikennslusvæði í rjóðri norðarlega í Fagrahvammi. Stendur m.a. til að koma upp bekkjum úr trjábolum og aðstöðu undir eldstæði, en svæðið mun auk annars nýtast til heimilisfræðikennslu.

Þá óskar skólinn eftir leyfi til að auka skjól, til dæmis með því að bæta við trjábolum sem settir yrðu niður lóðrétt á milli trjánna. Verkið yrði unnið í samvinnu við Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga. Var erindi þessa efnis tekið afgreitt á fundi byggðaráðs Blönduósbæjar í síðustu viku og var þessum áformum sem og aukinni fjölbreytni í kennsluháttum við skólann fagnað. Erindið var samþykkt og skólanum falið að hafa samráð við tæknideild bæjarins um málið.

Fleiri fréttir