Aukinn kostnaður við nær alla málaflokka

Húnavallaskóli í Húnavatnshreppi. Mynd: KSE
Húnavallaskóli í Húnavatnshreppi. Mynd: KSE

Á sveitarstjórnarfundi Húnavatnshrepps í í gær var samþykkt fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðu verði jákvæð um 8,6 milljónir króna. Tekjur verði 463 milljónir og gjöld 454,4 milljónir með fjármagnsliðum. Skuldahlutfall er áætlað 41%.

Gert er ráð fyrir talsverðum fjárfestingum og framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins á næsta ári. Stærsta einstaka framkvæmdin er áframhaldandi lagning ljósleiðara. Auk hefðbundinna viðhaldsframkvæmd verður haldið áfram að framkvæma við Húnaver og unnið að endurbótum á skólahúsnæðis Húnavallaskóla og öðrum fasteignum sveitarfélagins. Gjaldskrá hækkar almennt í samræmi við verðlagsbreytingar. Vistunargjald leikskóla og gjaldskrá fyrir skólamötuneyti hækkar ekki. Álagningaprósentur fasteignagjalda verða óbreyttar.  

Í bókun oddvita kemur fram að við fjárhagsáætlanagerðina hafi verið lögð áhersla á aðhald í rekstri eins og undan farin ár. Jafnframt að halda áfram að viðhalda eignum sveitarfélagsins. Þá segir í bókuninni: „Þrátt fyrir góða stöðu sveitarsjóðs er nauðsynlegt að fram komi að rekstur sveitarfélagsins er að þyngjast líkt og á við um nær öll sveitarfélög landsins. Sífellt erfiðara verður að uppfylla kröfur um að áætlanir sýni jákvæða rekstrarniðurstöðu vegna aukins kostnaðar við nær alla málaflokka. Þar vegur aukinn launakostnaður þyngst, á meðan tekjur hafa ekki aukist í sama hlutfalli. Því er afar mikilvægt að halda áfram að sýna ráðdeild í rekstri.“

Fleiri fréttir