Austur-Húnavatnssýsla kynnt í flugvélum Icelandair
Næstu þrjú árin verður Austur-Húnavatnssýsla kynnt í sjónvarpsþáttunum Unique Iceland sem sýndir eru um borð í flugvélum Icelandair. Blönduósbær og Húnavatnshreppur hafa gert samning við Icelandair um gerð og birtingu kynningarefnis í markaðskerfi flugfélagsins. Frá þessu er greint á vefnum Húnahornið.
Samningurinn er til þriggja ára og verður kynningarefnið einnig á vefsíðu og í fréttablaði Icelandair. Tökulið frá Sagafilm hefur nú þegar tekið upp efni úr sveitarfélögunum sem notað verður í kynninguna. Icelandair hefur framleitt sjónvarpsþættina Unique Iceland síðan árið 2011 í samráði við markaðsskrifstofur og ferðaþjónustuaðila á Íslandi. Þættinum er fyrst og fremst ætlað að selja áfangastaðinn Ísland og um leið að skemmta, fræða og upplýsa ferðamenn um land og þjóð.
Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri á Blönduósi segir í samtali við Húnahornið að markmiðið með samningnum sé fyrst og fremst að vekja athygli á svæðinu. „Við höfum í auknum mæli verið að færa okkur yfir í aðra miðla en prentmiðla til að vekja athygli á okkur eins og samfélagsmiðla og netmiðla. Ferðaþjónusta er sífellt að vaxa hjá okkur. Fleiri gististaðir að opna og svo getum við tekið við töluvert fleiri ferðamönnum áður en menn fara að verða varir við átroðning. Þannig að við eigum mikið inni,“ segir Arnar Þór í viðtali á Húnahorninu.