Autt á aðalleiðum á Norðurlandi vestra

Autt er orðið á aðalleiðum norðvestan til en þó eru hálkublettir í Húnavatnssýslu og milli Hofsós og Siglufjarðar en einnig á útvegum, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxnadalsheiði. 

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan 5-10 og dálítil él en hægari austan átt og léttir heldur til síðdegis. Hiti 0 til 4 stig en vægt frost í nótt.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á laugardag:
Austlæg átt, 8-15 m/s, hvassast syðst. Stöku él suðaustan og austantil, en annars þurrt og bjart að mestu. Hiti 0 til 6 stig S- og V-lands yfir daginn, en annars hiti um og undir frostmarki.

Á sunnudag:
Breytileg átt, 3-8 m/s og léttskýjað að mestu, en austan 8-13 syðst og stöku slydduél. Hiti 0 til 5 stig S- og V-lands að deginum, en annars í kringum frostmark.

Á mánudag og þriðjudag:
Fremur hæg norðaustlæg átt og víða þurrt og bjart, en skýjað að mestu við norður- og austurströndina. Heldur kólnandi veður.

Á miðvikudag og fimmtudag (skýrdagur):
Breytileg átt, skýjað með köflum og él á stöku stað. Frostlaust suðvestan til yfir daginn, en annars frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands.

Fleiri fréttir