AWE hraðallinn býður upp á spennandi tækifæri fyrir konur til að koma viðskiptahugmynd á laggirnar

Háskóli Íslands og Bandaríska sendiráðið á Íslandi leita nú að þátttakendum fyrir nýsköpunarhraðalinn Academy for Women Entrepreneurs (AWE) sem er sérstaklega ætlaður konum og hefst nú 3. febrúar og lýkur með útskrift þann 6. maí. Bæði einstaklingar og lið geta tekið þátt í hraðlinum og frestur til að skila inn umsókn um þátttöku rennur út 17. janúar. Nýsköpunarhraðallinn er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru verðlaun veitt í lok hraðalsins.

Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að þetta sé í annað sinn sem hraðalinn er haldinn en markmið hans er að styðja konur í að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar og fyrirtæki og auka hlut þeirra innan frumkvöðla- og nýsköpunargeirans. Jafnframt er tilgangur hraðalsins að bjóða upp á fræðslu og efla tengslanet kvenna.

Nýsköpunarhraðallinn samanstendur af netnámskeiðinu Dreambuilder á vegum Thunderbird School of Management við Ríkisháskólann í Arizona og þrettán vinnulotum sem Háskóli Íslands heldur utan um. Þar njóta þátttakendur m.a. leiðsagnar reyndra kvenna í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi við uppbyggingu fyrirtækja, mynda ný tengsl og efla starfsþróun og starfshæfni. Lögð er rík áhersla á að konur alls staðar af landinu og með fjölbreyttan bakgrunn og uppruna taki þátt. Fyrirkomulag hraðalsins er því með þeim hætti að flestar vinnulotur eru í streymi.

Hólmfríður Sveinsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri
Mergs Ráðgjafar er ein af mentorum í hraðlinum en auk
hennar eru Fida Abu Libdeh, forstjóri og annar stofnenda
GeoSilica og Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch,
framkvæmdastjóriRaunvísindastofnunar.

Verðlaun eru veitt fyrir bestu viðskiptahugmyndina bæði í einstaklings- og teymisflokki:

1. sæti – 500.000 kr.
2. sæti – 300.000 kr. 
3. sæti – 200.000 kr.

Einnig eru veitt verðlaun fyrir „pitch“ keppni að upphæð 200.000 kr.

Í tilkynningunni kemur fram að í fyrra hafi færri konur komist að en vildu og því hafi verið tekin ákvörðun um að fjölga þátttakendum þannig að fulltrúar allt að 50 viðskiptahugmynda verða teknir inn að þessu sinni.

Hægt er að skrá sig til þátttöku í hraðlinum á vef AWE. Þar eru einnig frekari upplýsingar um fyrirkomulag hraðalsins og upptaka af kynningarfundi sem fram fór í lok síðasta árs.

Nánar um AWE-hraðalinn

Háskóli Íslands stendur fyrir AWE-hraðalinum í samvinnu við Bandaríska sendiráðið en AWE-verkefnið er í boði í yfir 50 löndum víða um heim á vegum bandarískra stjórnvalda. Ísland er fyrst norrænu ríkjanna til að taka þátt í verkefninu. Að skipulagningu hraðalsins koma einnig Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) og Samtök kvenna af erlendum uppruna (W.O.M.E.N).

Tuttugu og fimm konur voru í hópi fyrstu þátttakenda í hraðlinum í fyrra og hafa í framhaldinu haslað sér völl bæði hér heima og erlendis með frekari þróun og fjármögnun viðskiptahugmynda sinna.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir