BA nemendur við ferðamáladeild á Hólum kynna ritgerðir

Í gær, miðvikudaginn 7. maí, komu átta útskriftarnemendur ferðamáladeildar Háskólans á Hólum saman og kynntu lokaritgerðir sínar. Á vef Hólaskóla kemur fram að viðfangsefnin hafi verið fjölbreitt að vanda eins og sjá má á eftirfarandi titlum:

Hótelrekstur í Dalabyggð. Er sjálfbærni höfð að leiðarljósi e. Hönnu Valdísi Jóhannsdóttur

Klasasamstarf ferðaþjónustuaðila innan Kötlu jarðvangs e. Hörpu Íshólm Ólafsdóttur

Food and Fun. Árlegur matarviðburður á Íslandi e. Ingibjörgu Sævarsdóttur

Hver ber ábyrgðina? Umgjörð og framkvæmd öryggismála meðal ferðamanna á eigin vegum í óbyggðum Íslands e. Ingu Hrönn Ásgeirsdóttur

Ferðaþjónusta í sveitarfélaginu Árborg: Staða stefnumótunar ferðamála í sveitarfélaginu e Jónínu Ástu Ölversdóttur

Hver er staða ferðaþjónustu í Skeiða-og Gnúpverjahreppi út frá sjónarmiðum sjálfbærni? e. Rósu Kristínu Benediktsdóttur

Töfrar myrkurhimins. Staða og möguleikar í ferðaþjónustu e. Þóreyju Rósu Stefánsdóttur

Öryggi ferðamanna á sjó í lögsögu Íslands e. Elsu Bergþóru Björnsdóttur

Ábyrgð leiðsögumanns í trúartengdri ferðaþjónustu e. Tinnu Rós Steinsdóttur

Bergþóra Aradóttir, umsjónarkennari BA-ritgerða hjá Hólaskóla sagði nemendurna hafa staðið sig með ágætum og í fyrirspurnum hafi skapast frjóar og skemmtilegar umræður.

Fleiri fréttir