Bæjarráð Blönduóss sammála SSNV
Bæjarráð Blönduóssbæjar tekur undir ályktun stjórnar SSNV frá 15. mars þar sem þingsályktunartillaga nokkurra þingmanna um lagningu Svínavatnsleiðar sem og framgöngu Akureyrarbæjar varðandi sömu veglagningu var gagnrýnd. Þetta kom fram á fundi bæjarráðs í gær.
Bókunin hljóðar svo:
„Stjórn SSNV ítrekar fyrri ályktanir sem og ályktun 18. ársþings SSNV um að lögum samkvæmt fara sveitarfélögin með skipulagsvaldið. Stjórnin skorar á öll sveitarfélög landsins að standa saman vörð um sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga í skipulagsmálum. Stjórnin beinir því til alþingismanna að leggjast gegn öllum áformum um lagasetningu sem ganga gegn þeim rétti. Stjórnin lýsir undrun á framgöngu Akureyrarbæjar í umfjöllun um lagningu svonefndar Svínavatnsleiðar/Húnavallaleiðar sem gengur freklega gegn rétti og hagsmunum viðkomandi sveitarfélaga og lesa má í fundargerð bæjarráðs Akureyrarbæjar frá 10. mars 2011.“