Bændur vilja innflutning á erfðaefni holdanauta
Aðalfundi Landssambands kúabænda sem haldinn var á Egilsstöðum lauk fyrir stundu. Sigurður Loftsson í Steinsholti var endurkjörinn formaður samtakanna, sem og aðrir stjórnarmenn Guðný Helga Björnsdóttir á Bessastöðum í Húnaþingi vestra, Jóhann Gísli Jóhannsson á Breiðavaði, Jóhann Nikulásson í Stóru-Hildisey 2 og Trausti Þórisson á Hofsá. Jóhanna Hreinsdóttir í Káraneskoti og Guðrún Lárusdóttir í Keldudal í Skagafirði verða áfram varamenn í stjórn Landssambands kúabænda.
Aðalfundarfulltrúar ályktuðu um nautakjötsmál og áréttað þá brýnu þörf sem til staðar er varðandi endurnýjun á erfðaefni holdanautastofnanna sem hér á landi eru. Á vef LK segir að ljóst sé að ef stunda eigi holdanautaræktun þá þurfi að koma til innflutnings á nýju erfðaefni erlendis frá. Vakin er athygli á því að hér er ekki rætt um mjólkurkúakyn, enda liggur afstaða kúabænda fyrir í því máli.
Öðru máli gegnir um afstöðuna til innflutnings á erfðaefni fyrir holdanautaræktun, segir á Naut.is, og því leggur fundurinn til að þegar verði hafist handa við eftirfarandi:
• Kanna hvernig standa ætti að innflutningi þannig að hann yrði ásættanlegur með tilliti til smitvarna en þó hóflega kostnaðarsamur.
• Áætla ábata og kostnað við innflutning svo hægt sé að meta hvort hann er yfir höfuð skynsamlegur.
• Gera áætlun um framtíðarskipulag ræktunar holdanautastofnsins, m.a. áætla hversu títt þurfi að flytja inn erfðaefni í framtíðinni.
• Gert verði átak til að efla fagmennsku í greininni, s.s. með skýrsluhaldi og öflugri leiðbeiningaþjónustu til að ná betri arðsemi út úr greininni.