Bætt netsamband í Húnavatnshreppi

Á síðasta hreppsnefndarfundi Húnavatnshrepps var samþykkt að taka tilboði frá iCell, sem er rekstraraðili Emax, í nýtt internetsamband fyrir hreppinn. Samkvæmt tilboðinu er áætlaður kostnaðarhluti Húnavatnshrepps tæplega 4,3 milljónir króna. Til stendur að nýja kerfið verði sett upp í sumar.

Framkvæmdatími er áætlaður tveir til þrír mánuðir. Þetta kemur fram í fundargerð hreppsefndar frá 2. maí síðastliðnum. Þar segir jafnframt að samhliða þessu sé mikilvægt að samningar takist við Emax um bætta viðhaldsþjónustu þeirra á dreifikerfinu í Húnavatnshreppi.

Fleiri fréttir