Bættar vegsamgöngur við Skagastrandarveg

Til stendur að byggja 8,5 km langan stofnveg frá Hringvegi austan Blönduós að Þverárfjallsvegi skammt austan við brú á Laxá og mun þessi nýi vegur verða hluti Þverárfjallsvegar að framkvæmdum loknum.  Þetta kom fram á fundi bæjarráðs Blönduósbæjar í gær þegar bréf  frá Vegagerðinni var lagt fram til kynningar.

Í fundargerð segir að frá nýjum Þverárfjallsvegi verður byggður 3,3 km langur vegur til norðurs með nýrri brú yfir Laxá og inn á núverandi Skagastrandarveg skammt norðan við Höskuldsstaði. Þessi vegur ásamt nýrri brú mun að framkvæmdum loknum verða hluti Skagastrandarvegar.

Fjárveitingar til hluta verksins eru á 3 tímabili samgönguáætlunar 2019-2022.

Fleiri fréttir