Barbara Wenzl knapi Ís-landsmótsins
Ís-landsmótið fór fram á Svínavatni í dag og gekk allt eins og best verður á kosið, samkvæmt heimasíðu mótsins. Veður var eins og best verður á kosið, þ.e. logn, þurrt, hiti um frostmark og ísinn aldrei betri. Barbara Wenzl var knapi mótsins en hún sigraði í tveimur flokkum á Dal frá Háleggstöðum, annars vegar í B-flokki með einkunnina 8,76 og hins vegar tölti með 7,23. Dalur var kjörinn hestur mótsins.
Tryggvi Björnsson sigraði A-flokk á stóðhestinum Blæ frá Miðsitju með einkunnina 8,54 en hann endaði síðan annar í B-flokki með einkunnina 8,73, eftir að hafa verið efstur eftir forkeppni.
Úrslit dagsins voru eftirfarandi:
Úrslit B-flokkur | ||||
1 | Barbara Wenzl | Dalur frá Háleggsstöðum | 8,76 | |
2 | Tryggvi Björnsson | Stimpill frá Vatni | 8,73 | |
3 | Hörður Óli Sæmundarson | Andri frá Vatnsleysu | 8,70 | |
4 | Arnar Bjarki Sigurðsson | Kaspar frá Kommu | 8,67 | |
5 | Ólafur Magnússon | Gáski frá Sveinsstöðum | 8,64 | |
6 | Þórarinn Ragnarsson | Hrafnhetta frá Steinnesi | 8,59 | |
7 | Anna Kristín Friðriksdóttir | Glaður frá Grund | 8,51 | |
8 | Elvar Einarsson | Hlekkur frá Lækjarmóti | 8,49 | |
9 | Stefán Birgir Stefánsson | Gangster frá Árgerði | 8,40 | |
Úrslit A-flokkur | ||||
1 | Tryggvi Björnsson | Blær frá Miðsitju | 8,54 | |
2 | Páll Bjarki Pálsson | Seiður frá Flugumýri 2 | 8,47 | |
3 | Stefán Birgir Stefánsson | Tristan frá Árgerði | 8,46 | |
4 | Sæmundur Þ Sæmundarson | Mirra frá Vindheimum | 8,43 | |
5 | Elvar Eylert Einarsson | Starkaður frá Stóru Gröf Ytri | 8,40 | |
6 | Vignir Sigurðsson | Spói frá Litlu- Brekku | 8,34 | |
7 | Sverrir Sigurðsson | Rammur frá Höfðabakka | 8,28 | |
8 | Friðgeir Ingi Jóhannsson | Ljúfur frá Hofi | 8,21 | |
Úrslit tölt | ||||
1 | Barbara Wenzl | Dalur frá Háleggstöðum | 7,23 | |
2 | Arnar Bjarki Sigurðarson | Rán frá Neistastöðum | 7,00 | |
3 | Líney María Hjálmarsdóttir | Kristall frá Varmalæk | 6,93 | |
4 | Baldvin Ari Guðlaugsson | Senjor frá Syðri Ey | 6,87 | |
5 | Sölvi Sigurðarson | Kolvakur frá Syðri- Hofdölum | 6,77 | |
6 | Jessie Huijbers | Daníel frá Vatnsleysu | 6,73 | |
7 | Hekla Katharína Kristinsd | Hrymur frá Skarði | 6,67 | |
8 | Ólafur Magnússon | Gáski frá Sveinsstöðum | 4,67 |