Bardaginn á Örlygsstöðum
Adan bókaútgáfa hefur gefið út skáldsöguna Bardaginn á Örlygsstöðum eftir Önnu Dóru Antonsdóttur, myndskreytta af Sillu Skaftadóttur McClure. Bókin er spennandi skáldsaga, unnin upp úr Sturlungu og góð kynning á þessum atburði Sturlungaaldar.
Hér segir ungur drengur frá. Hann verður vitni að örlagaríkum og þó sorglegum átökum sem er bardaginn á Örlygsstöðum sem háður var í Skagafirði árið 1238. Yngri kynslóðinni er sérstaklega með þessari bók opnuð leið inn í heim Sturlungu. Raunar er þetta bók fyrir börn á öllum aldri. Bókin er kjörin til lestrar í skólum.
Bókin er 95 bls. og fáanleg bæði sem kilja og í harðspjöldum. Bókin er til sölu á almennum markaði. Meðal annars er hún til sölu í Kakalaskála í Skagafirði. Pantanir má senda á adan@adan.is eða annaan@simnet.is. Nánari upplýsingar má finna á www.adan.is. Þar er m.a vinnuhefti úr bókinni til notkunar í skólum, til útprentunar eftir þörfum.
Fréttatilkynning