Bátur fékk í skrúfuna
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
04.12.2014
kl. 10.54
Björgunarskipið Húnabjörg var kallað út um klukkan 4:24 í nótt til að aðstoða bát sem var staddur um 30 sjómílur norður frá Skagaströnd. Samkvæmt facebook-síðu björgunarsveitarinnar Strandar hafði báturinn fengið í skrúfuna og var vélarvana.
Laust fyrir klukkan átta í morgun var Húnabjörg komin með bátinn í tog og sækist heimferðin vel, samkvæmt síðunni. Veður á svæðinu er nokkuð gott SSV 7-10 m/s og sjólítið. Áætlað er að skipin komi til hafnar á Skagaströnd um hádegisbilið.