Bein útsending frá Norðurlandamóti íslenska hestsins
Norðurlandamótið í hestaíþróttum fer fram dagana 2. - 5. ágúst nk. Hægt verður að fylgjast með síðustu tveimur dögum mótsins á netinu þar sem Svíarnir munu sýna beint á frá keppninni dagana 4. - 5. ágúst, á vefsíðunni: www.nc2012.se.
Samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins Stíganda er íslenska landsliðið í mótun og verður tilkynnt mánudaginn 16. júlí kl. 16:00.
Hér er einnig slóð á stutt kynningarmyndband.