Beit mann í nefið

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi í desember sl. pólskan ríkisborgara fyrir stórfellda líkamsárás, sem átti sér stað í október sl., þegar hann beit mann í nefið. Ákærði  var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi og var gert að greiða fórnarlambinu 400 þúsund krónur í bætur vegna áverkanna.

Í dómsskjölum kemur fram að ákærði hafi bitið 0,5 fersentímetra stykki framan af hægri nös og nefbroddi manns með með þeim afleiðingum að hann hlaut 2x2 sm sár hægra megin á nef, missti part af hægri nasavæng og skaði varð á brjóski nefsins. Sá sem fyrir árásinni varð þurfti að undirgangast aðgerð til lagfæringar á nefinu og eru fleiri aðgerðir fyrirhugaðar.

Mennirnir tveir eru einir til frásagnar um upptök átaka þeirra en í niðurstöðu dómsins segir að þeir hafi sammælst um að reyna með sér einhverskonar bardagatækni en ákærði neitar því og bar að hinn hafi áttu upptökin að átökum þeirra.

„Ákærði og Y eru sammála um að þeir hafi í tvígang tekist á en fyrri átökum þeirra hafi lokið án nokkurra afleiðinga. Af hegðan þeirra fyrir og eftir átökin verður ekki annað ráðið en að átökin hafi ekki stafað af illindum þeirra í milli,“ segir í dómsskjölum. Hvernig síðari átökin hófust verður að miða við að þeir hafi tekist á með samþykki þeirra beggja. „Tóku þeir því báðir ákveðna áhættu á því að þeir myndu meiðast í átökunum, sbr. niðurlag 13. kap. Jónsbókar. Sú háttsemi ákærða að bíta Y í nefið er hins vegar utan við það sem Y mátti vænta frá ákærða í fangbrögðunum,“ segir jafnframt í niðurstöðu dómsins.

Fleiri fréttir