Bensín lækkar vegna knattspyrnumóts

N1 mót KA á Akureyri hófst formlega í gær og stendur fram til laugardags. Þar koma saman drengir úr 5. flokki karla í knattspyrnu og keppa við bestu aðstæður. Þessu ber að fagna þar sem N1 hefur af því tilefni lækkað verð á lítra af bensíni og díseilolíu um 15 kr. til miðnættis í dag, 5. júlí.

Bensínlítrinn kostar því 228,70 kr. á N1 í dag en lítri af díselolíu kostar 228,50 krónur. Verðlækkunin gildir til miðnættis.

Fleiri fréttir