Bergur Elías lætur af störfum hjá SSNV
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
24.08.2015
kl. 09.45
Bergur Elías Ágústsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra SSNV frá síðustu áramótum, mun láta af störfum um næstu mánaðarmót og fara til starfa hjá þýska fyrirtækinu PCC, sem stendur að uppbyggingu kísilverksmiðju á Bakka við Húsavík.
„Vissulega verður það með ákveðnum trega, enda hefur verið ánægjulegt að vinna með starfsfólki SSNV og stjórn samtakanna,” sagði Bergur Elías þegar Feykir hafði samband við hann í morgun. „En stundum er það þannig í lífinu að maður færi á borð sitt áhugaverð tækifæri og þá þarf maður að hrökkva eða stökkva.”