Betri afkoma Blönduóssbæjar en búist var við
Rekstrartekjur Blönduóssbæjar námu á árinu 2010 alls um 620 millj. kr. samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta sem er nokkuð hærra en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði var neikvæð um 4,9 milljónir kr.
Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var neikvæð um 41 milljón kr. og er 12 milljónum kr. betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Skuldir og skuldbindingar samtals eru 1.180.172 þús. kr. árið 2010 en voru 865.389 þús kr. árið á undan. Tekin ný langtímalán eru 250 milljónir kr. Afborganir langtímalána ársins 2010 voru 78 milljónir kr.
Þetta kemur fram í bókun sem lögð var fram fundi Bæjarstjórnar í síðustu viku en þar kemur einnig fram að árið 2010 var mikið framkvæmdaár og námu eignfærðar framkvæmdir ársins um 327 milljónum kr. Lokið var við framkvæmdir við sundlaugina á Blönduósi og talsverðar framkvæmdir voru á vegum byggðasamlaga sem Blönduós á aðild að og má nefna miklar endurbætur sem voru gerðar á Kvennaskólanum á Blönduósi og endurbætur á íbúðum eldri borgara í Hnitbjörgum.