Betri fréttir fyrir íbúa í Húnaþingi vestra

Almannavarnir á Norðurlandi vestra sendu frá sér tilkynningu nú fyrr í kvöld þar sem líst var yfir að úrvinnslusóttkví sem sett var á í Húnaþingi vestra áum síðustu helgi sé felld úr gildi frá og með miðnætti. Samkomubann er engu að síður í gildi líkt og annars staðar á landinu.

Þetta eru að sjálfsögðu góðar fréttir fyrir íbúa í Húnaþingi vestra sem hafa ekki mátt fara út úr húsi nema einn fjölskyldumeðlimur í senn þessa vikuna. Tilkynningu almannavarna má lesa hér að neðan:

Tilkynning frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra !!

Úrvinnslusóttkví sú sem sett var á í Húnaþingi vestra þann 21. mars síðastliðinn er felld úr gildi frá og með miðnætti föstudaginn 27. mars 2020. Jafnframt gilda frá nefndu tímamarki almennar reglur um samkomubann sem settar voru af sóttvarnalækni og gilda fyrir landið allt. Eftir sem áður vill Aðgerðastjórn almannavarna Norðurlands vestra, beina því til almennings að gæta almennra sóttvarna og virða þær reglur og viðmið sem gefin hafa verið út af sóttvarnalækni (sjá covid.is) til hins ýtrasta.

Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra vill færa íbúum Húnaþings vestra sérstakar þakkir fyrir að hafa sýnt skilning, þolinmæði, samvinnu og að hafa brugðist vel við þeim aðstæðum sem úrvinnslusóttkví hefur haft í för með sér fyrir íbúa svæðisins og starfsemi innan sveitarfélagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir