Bilun hjá Vodafone komin í lag
Bilun varð á GSM-sambandi, net- og sjónvarpsþjónustu Vodafone á Norðurlandi í gær. Bilunin átti sér stað á Akureyri og gerði það að verkum að truflun varð á sambandi víða um Norðurland.
„Tæknimenn unnu fram á rauða nótt í að greina hvað gerðist og tryggja að þetta gerist ekki aftur. Við erum með tvöfalt kerfi svo annað geti tekið við ef hitt bilar en það vildi svo ólíklega til að það bilaði líka. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið fólki,“ sagði Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi hjá Vodafone.
Bilunin varð í aðalflutningsleið á ljósleiðarakerfi Vodafones um kl. 14 í gær og sem fyrr segir tók varaflutningsleiðin við í kjölfarið tók en hún bilaði einnig. Mestu áhrifin mátti gæta á Akureyri og breiddust þau þaðan bæði til austurs og vesturs. Bilunin var að mestu komin í lag á Akureyri um kl. 16 í gær en staðbundnar truflanir voru enn víða til kl. 22:30 í gærkvöldi, m.a. á Húsavík og Sauðárkróki.
Vegna bilanana varð röskun á síma- og nettenginum en GSM-samband var í lagi. Truflanir á nettenginum geta haft fjölþætt og óþægileg áhrif í för með sér, en í gær datt t.d. sjónvarp út, víða var ekki hægt að greiða með greiðslukorti þar sem margir posar eru nettengdir og sumar sjálfvirkar bensíndælur virkuðu ekki. Jafnvel sumir hraðbankar voru í ólagi sökum þessarar bilunar.