Bílvelta á Vatnsskarði

Bíll valt vegna hálku á Vatnsskarði í gærkvöldi. Samkvæmt Mbl.is voru fjögur ungmenni í bílnum og voru þau öll flutt á sjúkrahúsið á Sauðarkróki til skoðunar.

Mikil hálka er á svæðinu og sagði lögreglan á Blönduósi í samtali við Mbl.is að vegurinn hafi verið blautur og mikið um hálkubletti þegar slysið var og þegar leið á kvöldið fór að snjóa á svæðinu og allt varð hvítt.

Fleiri fréttir