Bílveltur í gríðarlegri hálku í Langadal

Tvær bílveltur voru við Auðólfsstaði í Langadal í gær. Báðir bílarnir voru vel búnir til vetraraksturs en það dugði ekki til þar sem gríðarlega mikil hálka var á þessum vegarkafla. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi urðu ekki alvarleg slys á fólki.

Mbl.is greinir frá því að bílvelturnar hafi átt sér stað á um 100 metra kafla en fyrri bílveltan varð um klukkan 15:20. Bíllinn fór eina og hálfa veltu og endaði á toppnum. Farþegar bílsins voru tvær ungar konur og ungabarn, þær slösuðust ekki en voru fluttar á heilsugæslustöðina á Blönduósi til skoðunar. Sá bíll var á negldum vetrardekkjum.

Seinni bílveltan varð tveim tímum síðar, um klukkan 17:20 en bíllinn fór eina veltu og endaði á toppnum. Þar var ung kona ein á ferð sem var flutt á heilsugæslustöðina á Blönduósi. Hún var ekki talin vera alvarlega meidd en hún fékk skrámur á höfuðið og kenndi til í baki.

Fleiri fréttir