Bingó í Húnabúð

Í kvöld verður haldið páskabingó í Húnabúð, Skeifunni 11, kl. 20:00-21:30. Frábærir vinningar eru í boði, m.a. sundkort í sundlaug Garðabæjar, þvottur fyrir bílinn í Bón- og þvottastöðinni, páskaegg, mini-golf fyrir fjóra í Skemmtigarðinum Grafarholti, gisting með baði og morgunverði í Langaholti (Görðum) á Snæfellsnesi.

„Vinsamlega hafið með ykkur smámynt,“ segir fréttatilkynningu á Húna.is. Verð á bingóspjöldum er: tvö spjöld á 500 krónur. Bingóstjórnandi verður Ólafur Jóhannsson og kaffi, gos, kleinur og ávextir verða á staðnum á 200 krónur á mann.

 

Fleiri fréttir