BioPol á Skagaströnd og Háskólinn á Akureyri endurnýja samstarfssamning

Sjávarlíftæknisetrið BioPol á Skagaströnd og Háskólinn á Akureyri undirrituðu nýlega samning um endurnýjun samstarfs milli stofnananna til næstu fimm ára en þær hafa átt samstarf frá stofnun BioPol árið 2007.
Á heimasíðu BioPol segir að allt frá stofnun þess í september 2007 hafi þar verið unnið að fjölbreyttum verkefnum sem meðal annars hafi miðað að því að kortleggja vannýtt tækifæri, til verðmætasköpunar, innan íslensks sjávarútvegs. Í dag starfi hjá félaginu átta vel menntaðir starfsmenn með fjölbreyttan bakgrunn. Á starfstíma félagsins hefur verið byggð upp fullkomin rannsóknaaðstaða ásamt vottuðu vinnslurými sem nýtist frumkvöðlum og smáframleiðendum.
Háskólinn á Akureyri hefur boðið upp á meistaranám í sjávarútvegs og auðlindafræðum og hefur kennsla í sjávarútvegsfræði frá upphafi farið fram í samstarfi við innlend sjávarútvegsfyrirtæki og fyrirtæki í tengdum greinum. Þeirra á meðal er BioPol á Skagaströnd.
Ennfremur segir að mikil ánægja hafi verið með samstarfið af hálfu beggja aðila og því hafi nýr samstarfssamningur verið gerður. Hann fjallar einkum um rannsóknir og tækniþróun á sviði sjávarlíftækni, matvælafræði og tengdra sviða. Í því felst meðal annars að skilgreina ný rannsóknaverkefni en helsti styrkleiki samstarfsins byggir á samlegð mismunandi sérfræðiþekkingar og meiri líkum á árangri með stærri rannsókna- og þróunarverkefnum. Báðir aðilar hafa það að markmiði að nýta sem best þá sérþekkingu sem samningsaðilarnir búi yfir en auk þess er samningnum ætlað að bæta aðgengi vísindamanna og nemenda HA að sérfræðiþekkingu og aðstöðu BioPol og gagnkvæmt.
Fimm stjórnarmenn sitja í stjórn BioPol og er einn þeirra frá HA sem leggur með því til verkefnisstjóra með þekkingu á sjávarlíftækni, hagnýtri örverufræði, vinnslutækni matvæla, nýsköpun og atvinnuþróun. Starfsstöð hans er við Háskólann á Akureyri en verkefnið er fyrst og fremst mótun faglegra áherslna samstarfsins og utanumhald rannsóknarverkefna. Dr. Hjörleifur Einarsson prófessor við HA hefur sinnt þessu hlutverki allt frá stofnun BioPol.
Samningurinn tilgreinir jafnframt að BioPol getur auglýst stöðu sérfræðings sem staðsettur verður hjá BioPol á Skagaströnd en staðan er tilkomin vegna vinnu svokallaðar NV nefndar sem starfaði fyrir Forsætisráðuneytið árið 2008.