Birtir yfir kortunum
Allir vegir á Norðurlandi vestra eru nú greiðfærir, samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Þó er minnst á hálkubletti á Holtavörðuheiði og varað við vegaskemmdum á Þverárfjallsvegi. Vegurinn er mjög ósléttur og hraði því tekinn niður í 70 km/klst. Ásþungi er takmarkaður við tíu tonn.
Líklegt er að hægviðrið í dag blási mönnum í brjóst bjartsýni um að vorið sé loksins komið. Í það minnsta er sól í kortunum og spáir Veðurstofan norðaustan 3-8 m/s og skýjaðu með köflum. Hiti 3 til 8 stig í dag, en 5 til 10 stig á morgun.