Bjarni Jónsson bjartsýnn á leiðréttingar varðandi heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni
Mikil samstaða var á Landsfundi Vinstri grænna, sem haldinn var um helgina á Akureyri, um að verja heilbrigðiskerfið og heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Tvær ályktanir um heilbrigðismál voru samþykktar nánast samhljóða á fundinum.
Landsfundurinn ítrekaði mikilvægi góðrar heilbrigðisþjónustu og heilsugæslu fyrir alla landsmenn og að sérstaka áherslu bæri að leggja á að standa vörð um þjónustuna á hinum minni heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og minnt á að öflug heilbrigðisþjónusta er ein af grunnstoðum búsetu um land allt.
Þá var lýst áhyggjum yfir þeim mikla niðurskurði sem áfram er boðaður í heilbrigðiskerfinu og bitnar ekki síst á minni heilbrigðisstofnunum í dreifbýlinu sem sumar eru nú þegar illa leiknar. Fundurinn taldi ennfremur heilbrigðiskerfið í landinu komið að þolmörkum og að frekari niðurskurður gæti ekki orðið án þess að þjónusta við sjúklinga skerðist alvarlega og heilsuspillandi álag á heilbrigðisstarfsfólk aukist.
-Tillaga okkar var samþykkt með nánast öllum greiddum atkvæðum og var mikill sigur að okkar mati, segir Bjarni Jónsson landsfundarfulltrúi VG í Skagafirði en þeir sendu inn ályktun gegn frekari niðurskurði í heilbrigðiskerfinu. -Ég get ekki verið annað en bjartsýnn á einhverjar leiðréttingar í ljósi samstöðunnar þar, um heilbrigðisþjónustuna, segir Bjarni aðspurður hvort þessi afgreiðsla geti haft einhver áhrif á fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki, en endanleg útfærsla á fjárlögum ríkisins verður fram sett síðar í vetur.
Hægt er að sjá ályktanir samþykktar á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi 2011 HÉR