Bjarni vill átaksverkefni til að auka möguleika ungs fólks til starfa og búsetu.
Formaður SSNV Bjarni Jónsson setti fram á stjórnarfundi samtakanna hugmynd um að ráðist verði í sérstakt átaksverkefni um aðgerðir til þess að stemma stigu við brottflutningi ungs fólks af svæðinu. Umræður urðu um málið og eftirfarandi tillaga formannsins samþykkt.
„Stjórn SSNV samþykkir að fara í átaksverkefni sem miðar að því að ráðast í aðgerðir til þess að stemma stigu við brottflutningi yngra fólks af svæðinu og skapa því aukin tækifæri í landshlutanum. Markmið verkefnisins verði að gera svæðið enn eftirsóknarverðara til búsetu og starfa fyrir ungt fólk. Leitað verið samstarfs við sveitarfélög, fyrirtæki, skóla og stofnanir innan svæðis sem utan og ítrekaðar óskir um víðtæka aðkomu stjórnvalda að slíku átaksverkefni.“