Bjart yfir landinu í dag

Hægviðri og léttskýjað verður á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag, hiti 1 til 6 stig, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Norðaustan 3-8 m/s á morgun, skýjað með köflum og hiti um frostmark.

Velflestir vegir eru greiðfærir í Húnavatnssýslum og Skagafirði en hálkublettir eru á Öxnadalsheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag og miðvikudag:
Austlæg átt, yfirleitt á bilinu 3-10 m/s. Svolítil él N- og A-lands, en skúrir eða slydduél með S-ströndinni. Hiti 0 til 5 stig S-til yfir daginn, annars frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.

Á fimmtudag (skírdagur):
Suðaustan og austan 3-8 m/s. Dálitlir skúrir eða slydduél við S- og SV-ströndina en bjart á köflum á N- og A-landi. Hiti breytist lítið.

Á föstudag (föstudagurinn langi), laugardag og sunnudag (páskadagur):
Hæg breytileg átt. Víða nokkuð bjart veður, en stöku skúrir eða él, einkum við ströndina. Hiti 0 til 6 stig að deginum, en vægt frost NA-til.

Fleiri fréttir