Bjart yfir Norðurlandi vestra í dag
Austan 3-8 og bjart veður er á Ströndum og Norðurlandi vestra, frost 0 til 10 stig. Vegir eru að mestu auðir á láglendi en hálkublettir á fjallvegum.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Él V-til á landinu og við SA-ströndina, annars bjart veður. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum NA-lands, en frostlaust við SV-ströndina.
Á laugardag:
Sunnan 3-8 og skýjað, en léttskýjað á N- og A-landi. Hiti breytist lítið. Sunnan 8-13 og slydda eða snjókoma S- og V-lands um kvöldið.
Á sunnudag:
Vestlæg átt og él, en slydda eða rigning SA-lands. Hiti kringum frostmark að deginum.
Á mánudag:
Snýst í vaxandi suðaustanátt með snjókomu og síðar slyddu eða rigningu, en úrkomulítið NA-til á landinu. Hlýnandi veður.
Á þriðjudag:
Suðvestanátt og skúrir eða él, en úrkomulítið NA-lands. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig.
Á miðvikudag:
Norðvestlæg átt og él, en bjartviðri S- og A-lands.