Bjartir tímar framundan hjá hnípinni þjóð - Völvuspá Spákonuarfs 2012 komin út

Ólafur Ragnar Grímsson verður kjörinn forseti eitt kjörtímabil enn og Biskup Íslands lætur af störfum á árinu, segir í Völvuspá Spákonuarfs á Skagaströnd fyrir árið 2012 sem birt er í fyrsta tölublaði Feykis á nýju ári.

Spákonurnar hafa rýnt í framtíðina með þeim tækjum og tólum sem þær búa yfir og samkvæmt henni virðist árið 2012 ætlað að verða stóráfallalaust og spá þær landsmönnum betri tímum þegar líður á árið.

Hvað stjórnmálin varðar þá segja þær ríkisstjórnina trúlega lafa út árið, „en fólk er hætt að nenna að mótmæla lausgirtri ríkisstjórn sem heldur áfram för beltislaus,“ eins og þær orða það. Þær sjá  Evrópusambandið gliðna í sundur og evran á för niður á við. Á bjartari nótunum segja þær farsælan endi nást varðandi Icesave-málið er líður að áramótum.

Að venju taka þær einnig fyrir veðurfar, jarðhræringar, íþróttir og margt fleira sem lesa má nánar um í nýjasta tölublaði Feykis.

 

Fleiri fréttir