Bjartviðri næstu daga á Norðurlandi vestra
Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðaustan 5-13 m/s í dag, hvassast á annesjum. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti kringum frostmark að deginum.
Veðurspá Veðurstofu Íslands fyrir landið næstu daga:
Á laugardag:
Austan og norðaustan 5-13 m/s, en hægari NA-lands. Dálítil snjókoma eða él SV-til á landinu og við NA-ströndina, annars skýjað með köflum og þurrt. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan, en 0 til 5 stiga hiti SV-lands að deginum.
Á sunnudag:
Hæg breytileg átt og bjartviðri, en skýjað og él V-lands. Hiti breytist lítið.
Á mánudag:
Austan 3-8, skýjað með köflum og stöku él. Frost 0 til 5 stig, en 0 til 5 stiga hiti S- og V-lands.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Vaxandi Norðaustlæg átt og kólnandi veður. Snjókoma eða él fyrir norðan og austan, annars úrkomulítið.