Bjartviðri og kalt í dag

Veðrið kl. 12 á hádegi í dag, fimmtudaginn 25. febrúar, skv. spá Veðurstofu Íslands. Mynd/BÞ
Veðrið kl. 12 á hádegi í dag, fimmtudaginn 25. febrúar, skv. spá Veðurstofu Íslands. Mynd/BÞ

Suðaustan 3-8 m/s er á Stöndum og Norðurlandi vestra, lengst af bjartviðri og frost 2 til 12 stig, kaldast til landsins. Víða er hálka á Norðurlandi en sums staðar snjóþekja á útvegum. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á laugardag:

Hæg breytileg átt, léttskýjað og víða talsvert frost í innsveitum, en þykknar upp um landið sunnanvert og dálítil él við suðurströndina þegar kemur fram á daginn. 

Á sunnudag:

Gengur í hvassa suðaustanátt, fyrst suðvestantil með snjókomu og síðan rigningu. Hægari vindur norðaustanlands og úrkomulítið fram eftir degi. Hlýnandi veður. 

Á mánudag:

Snýst í nokkuð hvassa suðvestanátt með skúrum eða éljum, en léttir til um landið norðaustanvert. Áfram austlæg átt á Vestfjörðum með rigningu og síðan snjókomu. Hiti yfirleitt í kringum frostmark. 

Á þriðjudag:

Vestlæg átt og snjókoma eða él, en snýst í norðanátt um kvöldið.  

Á miðvikudag:

Líklega minnkandi norðanátt og kólnandi veður.

Fleiri fréttir