Bjóða upp á skemmtilega sumardagskrá
Sumardagskrá Héraðsbókasafns Austur-Húnavatnssýslu er hafin. Í tilkynningu frá bókasafninu kemur fram að í júní og júlí er ætlunin að gera sumarið enn skemmtilegra og bjóða upp á sumardagskrá á bókasafninu.
Á mánudögum verður „spiladagur“, þar sem bókavörður mun kynna nýtt spil í hverri viku kl. 16:30 og hægt verður að prófa það eða spila önnur spil á eftir.
Á þriðjudögum verður boðið upp á ratleik fyrir börn (6-10 ára) kl. 10:00 – 12:00. Börn sem vilja vera með mæta bara á safnið þá daga tímanlega.
Miðvikudagar verða „bókakaffi-dagar“, þar sem hægt er að kynna sér nýútkomnar og valdar bækur og fá sér kaffi og eitthvað gott með milli kl. 16:00 – 18:00.
Á fimmtudögum er svo hljóðbókastund fyrir yngri börn kl. 16:30, þar sem við veljum skemmtilega barnabók þar sem hljóðbók fylgir og hlustum saman á hana.
Sumardagskrá verður frá 1. júní – 15. júlí.
Fylgist með á Facebookar-síðu bókasafnsins þar sem nánar verður sagt frá hverri uppákomu í hverju sinni.
Opnunartímar safnsins í sumar verða óbreyttir.