Björgunarsveitin Strönd á æfingu með Gná
Björgunarsveitin Strönd var við æfingar með Gná þyrlu Landhelgisgæslunnar sl. miðvikudagskvöld. Í æfingunni tóku þátt um tólf manns frá Strönd á Húnabjörg og Aðalbjörgu ásamt áhöfn þyrlunar og köfurum.
Á heimasíðu björgunarsveitarinnar kemur fram að æfðar voru hífingar á mannskap og sjúkrabörum um borð í Húnabjörg og aftur frá borði. Einnig var æft að hífa menn úr gúmmíbjörgunarbáti og sömuleiðis úr sjó.
„Tókst æfingin í alla staði mjög vel og var áhöfn þyrlunar og okkar mannskapur ánægður með útkomuna. Ekki skemmdi veðrið heldur fyrir því logn var og stjörnubjart ásmat því að norðurljósin skörtuðu sínu fegursta,“ segir á heimasíðunni.
Sagt er frá því að á landleið varð mannskapurinn um borð í Húnabjörg vitni að loftsteinshrapi og það af stærri gerðinni.
„Hann birtist skyndilega í austri þegar við vorum á leið inn í innsiglinguna og var mjög bjartur og skipti litum úr bláhvítu yfir í grænhvítt áður en hann sundraðist og skildi eftir sig slóð af smá braki sem brann umsvifalaust upp. Hann virkaði mjög nálægt en hefur að sjálfsögðu verið í órafjarlægð en frá okkur séð hefði mátt halda að hann kæmi niður úti í Skagaheiði,“ segir loks á heimasíðunni.