Björgunarsveitin Strönd fræddi nemendur um meðhöndlun flugelda

Í síðustu viku heimsóttu meðlimir Björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd nemendur í Höfðaskóla, grunnskóla staðarins. Rætt var við nemendur 1. – 10. bekkjar um mikilvægi öryggis við alla meðhöndlun flugelda, og lögð sérstök áhersla á að ávallt skuli nota öryggisgleraugu. Í Þessu sambandi voru nemendum sýnd myndböndin „Rétt meðhöndlun flugelda“ og „Ekkert fikt“.

 

Á Facebooksíðu sveitarinnar segir einnig að rætt hafi verið um um muninn á stuttþræði og venjulegum þræði, farið yfir þau atriði sem hafa ber í huga varðandi þráð á flugeldum og nemendum sýndur munurinn svo þeir gætu þekkt þræðina í sundur.

Allir, bæði nemendur og kennarar, voru mjög áhugasamir og ánægðir með kynninguna og sögðust mun fróðari um efnið en áður, segir ennfremur á síðunni.

Fleiri fréttir