Björgunarsveitin Strönd gerir upp sumarið
Samkvæmt pistli á heimasíðu Bjsv. Strandar á Skagaströnd hefur verið óvenju rólegt hjá sveitinni þetta sumarið ef frá eru talin nokkur minniháttar útköll hjá Húnabjörg.
„Eina útkallið sem Strönd hefur þurft að sinna var þegar tveir trukkar festu sig í á vegna sandbleytu á leið frá Kjalvegi í Ingólfsskála þann 15 þessa mánaðar, annars er þetta eins og áður sagði búið að vera mjög rólegt sumar,“ segir í pistlinum.
Með haustinu fer líf að færast í starfsemina, menn að týnast heim úr sumarfríum og ferðalögum sumarsins með fullhlaðinn batteríin til í að takast á við komandi haust og vetur.
„Fyrstu merki um haustið eru að menn fara að huga að haustferð sveitarinnar sem orðinn er fastur liður ár hvert og er góð byrjun á haust og vetrarstarfinu, þjappar mönnum saman og kemur þeim í gírinn ef svo má segja. Þetta eru líka ávalt hinnar skemmtilegustu ferðir og mjög gaman að ferðast um landið okkar á þessum árstíma, sjá haustlitina og anda að sér fersku fjallaloftinu,“ segir á heimasíðu Strandar.