Björgunarsveitin Strönd sækir Sæfara
Björgunarsveitin Strönd fékk beiðni um að sækja bátinn Sæfara SK 112 rétt fyrir kl. 15 í gær en hann hafði þá fengið í skrúfuna um 13 sjómílur vestur frá Skagaströnd.
Samkvæmt heimasíðu björgunarsveitarinnar lagði Húnabjörg, bátur sveitarinnar, skömmu síðar úr höfn og var komin að Sæfaranum laust fyrir kl. 16 og tók bátinn í tog.
Ferðin til baka gekk tíðindalaust fyrir sig og kom Húnabjörg til hafnar á Skagaströnd með Sæfarann rétt fyrir kl. 18, eftir rétt um þriggja tíma ferðalag. Veður var ágætt, suðvestlægur 3-5 m/s og sæmilegt í sjóinn.