Björgunarsveitir frá Norðurlandi aðstoða við leit á Fimmvörðuhálsi
Allar björgunarsveitir á Norðurlandi eru á leið suður á Fimmvörðuháls til að aðstoða við þá viðamiklu leit sem þar fer fram. Skagfirðingasveit er á ferðinni með Björgunarsveitinni Gretti frá Hofsósi og Björgunarsveitinni frá Varmahlíð. Að sögn Haralds Ingólfssonar formanns Skagfirðingasveitar verða þeir komnir á aðgerðarstöðina, sem komið hefur verið upp hjá Baldvinsskála á Fimmvörðuhálsi, um kl. 18 í kvöld.
Fram kemur á Mbl.is að leitað hefur verið að sænskum ferðamanni frá því í gærkvöldi en maðurinn er einn á ferð. Hann hafði samband við Neyðarlínu kl. 22:21 í gærkvöldi og bað um aðstoð. Hann hafði gert nokkrar tilraunir við að hringja en símasamband er stopult á svæðinu og náði hann því ekki að tala við Neyðarvörð nema í stutta stund. Þá sagðist hann vera staddur á jökli og hafði verið á göngu í um 6-8 tíma en hann hafði lagt af stað frá Skógum. Ekki hefur náðst samband við manninn síðan.
Kallað var eftir aðstoð björgunarsveita um kl. 23 í gærkvöldi og hafa þeir verið við leit í alla nótt, ásamt þyrlu landhelgisgæslunnar. Nú eru hátt í þrjúhundruð björgunarsveitarmenn á svæðinu og bætast Björgunarsveitarmenn úr Skagafirði við hópinn undir kvöld til að taka þátt í leitinni.
„Við erum níu úr Skagfirðingasveit, ásamt einum leitarhundi og erum í samfloti með þremur björgunarsveitarmönnum frá Hofsósi og fjórum frá Varmahlíð. Ég veit að Björgunarsveitir víðar frá Norðurlandi eru farnar eða á leiðinni suður að hjálpa til, meðal annars frá Ólafsfirði, Akureyri, Hvammstanga..., já bara allar sveitir á Norðurlandi,“ sagði Haraldur í samtali við Feyki.
Aðstæður til leitar eru mjög erfiðar á svæðinu vegna slæms veðurs en mjög hvasst hefur verið á þessum slóðum og mikil úrkoma, samkvæmt heimildum mbl.is.